„Þetta eru tvö klaufaleg mörk en það er orðið svolítið þreytt að segja það," sagði Kári Árnason eftir 2-2 jafntefli Íslands og Katar í vináttuleik í kvöld.
Lestu um leikinn: Katar 2 - 2 Ísland
Hasan Al Haydos skoraði fyrsta mark Katar úr aukaspyrnu sem var afar umdeild.
„Ef hann dæmir brot á þetta í alvöru keppni þá held ég að hann dæmi ekkert mikið meira. Þetta var glórulaus aukaspyrna sem hann gefur þeim þarna. Þetta var frábært skot sem þeir eiga og það eru tvö mörk."
Kári var fyrirliði Íslands í dag en hann fór meiddur af velli í fyrri hálfleik og ljóst er að hann missir af næsta leik með Genclerbirligi í Tyrklandi.
„Ég lenti illa og gat ekki spyrnt af tánni. Þetta eru támeiðsli. Ég missi af næsta leik, það er alveg ljóst. Ég veit ekki hvað ég verð lengi frá, ég þarf að fara í myndatöku," sagði Kári.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir