Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 19. nóvember 2021 11:00
Elvar Geir Magnússon
AC Milan vill fá Lingard á frjálsri sölu
AC Milan er meðal félaga sem vilja Lingard.
AC Milan er meðal félaga sem vilja Lingard.
Mynd: Getty Images
ESPN segir að AC Milan sé meðal félaga sem vilji fá Jesse Lingard á frjálsri sölu frá Manchester United.

Samningur Lingard rennur út í lok tímabilsins og samkvæmt fréttum vill hann ekki gera nýjan samning við United.

Hann ku vera pirraður yfir spiltíma sínum og hefur þegar hafnað tilboðum frá felaginu. Hann vill spila meira til að auka líkurnar á að vera í enska landsliðshópnum á HM í Katar.

Talið er mögulegt að Lingard, sem er 28 ára, fari fram á sölu í janúarglugganum.

Lingard hefur aðeins spilað fimm úrvalsdeildarleiki á tímabilinu en skorað tvö mörk.
Athugasemdir
banner
banner