Pep Guardiola, stjóri Manchester City, staðfesti í dag að Kevin de Bruyne, miðjumaður liðsins, hefði fengið jákvæða niðurstöðu úr Covid-19 skimun.
Guardiola segir að de Bruyne hafi greinst eftir að hann sneri til baka til Englands eftir landsleiki með Belgum.
Guardiola segir að de Bruyne hafi greinst eftir að hann sneri til baka til Englands eftir landsleiki með Belgum.
Belginn mun nú vera í einangrun í tíu daga og missir því af nokkrum leikjum.
Hann missir af leiknum gegn Everton á sunnudag, leiknum gegn PSG í Meistaradeildinni í vikunni og svo heimaleiknum gegn West Ham um næstu helgi.
Athugasemdir