Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 19. nóvember 2021 20:58
Victor Pálsson
Holland: Kristian lék í mjög svekkjandi jafntefli
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristian Nökkvi Hlynsson lék með varaliði Ajax í kvöld sem spilaði við FC Volendam á heimavelli sínum í B-deild Hollands.

Kristian var í byrjunarliði Ajax í þessum leik en fór af velli á 70. mínútu er liðið hafði skorað fjögur mörk og var staðan 4-2.

Kristian komst ekki á blað að þessu sinni en leiknum lauk með 4-4 jafntefli sem er ansi svekkjandi fyrir Ajax.

Ajax var með 4-2 forystu á 88. mínútu en þá skoraði Volendam tvö mörk undir lok leiksins til að tryggja jafntefli.

Jöfnunarmarkið var skorað á 95. mínútu og kom í veg fyrir að Volendam myndi tapa sínum öðrum leik í vetur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner