Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 19. nóvember 2021 17:30
Elvar Geir Magnússon
ÍR og Leiknir spila Hlynsleikinn á morgun
Mynd: Samsett
Á morgun laugardag fer fram hinn árlegi Hlynsleikur milli ÍR og Leiknis í Breiðholti.

„Leikurinn er til minningar um okkar ástkæra ÍR-ing Hlyn Þór Sigurðsson sem féll frá 18 ára gamall á fótboltaæfingu hjá ÍR árið 2009," segir á heimasvæði ÍR á Facebook.

Leikurinn verður á gervigrasvelli ÍR og fer fram klukkan 14:00 á morgun. Vegna gildandi samkomutakmarkana verður leiknum streymt beint af YouTube-rás ÍR og er fólk hvatt til þess að fylgjast með leiknum þar.


Tekið er við frjálsum framlögum í sjóðinn:
Kt: 411209-0160
Rknr: 0115-05-60550
Athugasemdir
banner
banner
banner