Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 19. nóvember 2021 10:00
Elvar Geir Magnússon
Loðin svör Arteta varðandi stöðuna á Aubameyang
Pierre-Emerick Aubameyang.
Pierre-Emerick Aubameyang.
Mynd: EPA
Pierre-Emerick Aubameyang, fyrirliði Arsenal, gat ekki tekið þátt í landsleik Gabon gegn Egyptalandi í undankeppni HM í vikunni. Óvissa ríkir um þátttöku hans í stórleik Arsenal gegn Liverpool á Anfield á morgun.

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var spurður að því hvort það hefði verið planað fyrirfram að Aubameyang kæmi fyrr úr landsliðsverkefninu?

„Nei það var ekki ákveðið fyrirfram," sagði Arteta.

„Við þurftum að skoða hann og sjá hvernig hann er og taka svo ákvörðun. Það eru margir leikmenn sem hafa verið að fá smávægileg meiðsli í gegnum leikina svo allir verða skoðaðir."

Arteta var spurður að því hvort Aubameyang hefði komið til baka með einhver tiltekin meiðsli?

„Sjáum hvernig allir verða. Við þurfum að skoða þá betur í dag."

Um stöðuna á Thomas Partey:

„Staðan á honum er sú sama, hann gat ekki spilað fyrir landsliðið. Hann vildi spila en það var ekki hægt. Staðan á honum verður skoðuð í dag."

Liverpool og Arsenal mætast klukkan 17:30 á morgun. Liverpool er í fjórða sæti með 22 stig, tveimur stigum fyrir ofan Arsenal sem hefur unnið síðustu þrjá leiki sína.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
2 Arsenal 32 22 5 5 75 26 +49 71
3 Liverpool 32 21 8 3 72 31 +41 71
4 Aston Villa 33 19 6 8 68 49 +19 63
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 33 13 9 11 52 58 -6 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 32 12 7 13 46 51 -5 43
12 Fulham 33 12 6 15 49 51 -2 42
13 Bournemouth 32 11 9 12 47 57 -10 42
14 Crystal Palace 32 8 9 15 37 54 -17 33
15 Brentford 33 8 8 17 47 58 -11 32
16 Everton 32 9 8 15 32 48 -16 27
17 Nott. Forest 33 7 9 17 42 58 -16 26
18 Luton 33 6 7 20 46 70 -24 25
19 Burnley 33 4 8 21 33 68 -35 20
20 Sheffield Utd 32 3 7 22 30 84 -54 16
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner