Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fös 19. nóvember 2021 21:24
Victor Pálsson
Þýskaland: Bayern tapaði gegn Augsburg
Mynd: Getty Images
Augsburg 2 - 1 Bayern
1-0 Mads Pedersen ('23 )
2-0 Andre Hahn ('35 )
2-1 Robert Lewandowski ('38 )

Bayern Munchen tapaði mjög óvænt í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld er liðið heimsótti Augsburg í 12. umferð.

Alfreð Finnbogason leikur með Augsburg en hann var fjarri góðu gamni í dag og var ekki í hóp.

Augsburg gerði sér lítið fyrir og vann 2-1 heimasigur á meisturunum þar sem öll mörkin voru skoruð í fyrri hálfleik.

Augsburg komst í 2-0 áður en Robert Lewandowski klóraði í bakkann fyrir gestina frá Munchen.

Þetta var aðeins annað tap Bayern á tímabilinu en Augsburg lyfti sér úr fallsæti með þessum sigri.
Athugasemdir
banner
banner