fös 19. nóvember 2021 23:00
Victor Pálsson
Walcott telur að Ramsey vilji snúa aftur
Mynd: Getty Images
Theo Walcott, leikmaður Southampton, telur að Aaron Ramsey væri vel til í að snúa aftur til Arsenal ef tækifærið gefst á næsta ári.

Ramsey lék með Arsenal í 11 ár en samdi við Juventus er samningi hans lauk árið 2019. Tíminn á Ítalíu hefur þó ekki verið eins og hann hefði vonast eftir og er spilatíminn takmarkaður í dag.

Walcott spilaði með Ramsey hjá Arsenal á sínum tíma og telur að hann myndi grípa tækifærið ef Arsenal reynir við hann eftir áramót.

„Ég skal komast að þessu, ég skal hringja í hann og pressa á hann," sagði Walcott í samtali við TalkSport.

„Það væri gaman að fá hann aftur. Ég tel að hann vilji það. Það er ákveðin rödd sem segir mér að hann vilji snúa aftur til Arsenal."

.„Þetta er einn af þessum hlutum, hann er hjá Juventus og lék mjög vel með Wales um daginn. Það eru margir sem hafa gagnrýnt hann á Ítalíu. Hann er leiðtogi og vinnuhestur. Það væri frábært fyrir hann að koma aftur til Englands."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner