mið 19. desember 2018 12:45
Elvar Geir Magnússon
Pochettino: Ég er ekki með peninga
Mauricio Pochettino.
Mauricio Pochettino.
Mynd: Getty Images
Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, býst ekki við því að kaupa neinn leikmann í janúarglugganum. Hann segist ekki fá neinn pening til afnota út af nýja leikvangnum sem verið er að byggja.

Pochettino var spurður út í komandi janúarglugga á fréttamannafundi. Hann tók vasann úr buxum sínum út og sýndi að hann væri tómur.

„Ég er spurður að því hvort ég ætli að eyða peningum. Ég er ekki með neinn pening!" segir Pochettino en Tottenham keypti engan í sumarglugganum í ár.

„Tottenham byggði nýtt æfingasvæði og er að klára byggingu á leikvangi sem er einn sá besti í heimi. Við erum að gera alla þessa mögnuðu hluti með okkar eigið fé."

Tottenham veit að það verður erfitt að halda Pochettino næsta sumar en Manchester United og Real Madrid eru sögð horfa til hans.

Sjá einnig:
Pochettino um Man Utd: Sögusagnir skipta mig ekki máli
Athugasemdir
banner
banner