Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 19. desember 2018 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Selma Dögg áfram hjá FH
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Selma Dögg Björginvsdóttir er búin að skrifa undir nýjan tveggja ára samning við FH og mun því leika með liðinu í Inkasso-deildinni næsta sumar.

Selma Dögg er fædd 1997 og á 39 leiki að baki í Pepsi-deild kvenna en hún gekk í raðir FH frá Val fyrir þremur árum.

Selma er miðjumaður og á 49 leiki að baki fyrir FH en þeir væru eflaust fleiri ef hún hefði ekki spilað í háskólaboltanum í Bandaríkjunum.

„Það er okkur FH-ingum því mikið gleðiefni að Selma Dögg hafi ákveðið að halda áfram með FH á næsta tímabili því hún mun leika stórt hlutverk í liðinu og undirskrift hennar er mikilvægur liður í því FH nái markmiði sínu um að komast aftur upp í úrvalsdeild næsta sumar," segir í Facebook færslu frá FHingar.net.
Athugasemdir
banner
banner