Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 19. desember 2022 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu stemninguna í Argentínu - Alsæla í Buenos Aires
Fólkið í Argentínu er í alsælu þessa stundina
Fólkið í Argentínu er í alsælu þessa stundina
Mynd: EPA
Argentínska landsliðið vann þriðja heimsmeistaratitil sinn í sögunni er liðið vann Frakkland eftir vítakeppni í gær.

Lionel Messi skoraði tvö mörk og Angel Di María eitt fyrir Argentínu en þrenna frá Kylian Mbappe kom Frökkum í vítakeppni.

Þar hafði Argentína betur og út braust gríðarlegur fögnuður í Buenos Aires. Fólk streymdi út á götur borgarinnar og víða annars staðar um Argentínu.

Einn Argentínumaður sendi dróna yfir alla stemninguna en myndbandið af því er magnað sjónarspil.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner