Bernard Sheridan verður 104 ára þann 25. janúar næstkomandi.
Bernard hefur verið stuðningsmaður Liverpool frá 1923 en félagið ákvað að gefa honum afmælisgjöf fyrir stuðninginn í öll þessi ár.
„Kæri Bernard, ég vil óska þér til hamingju með 104 ára afmælið," stóð í bréfi sem Bernard fékk frá Jurgen Klopp, stjóra Liverpool. „Ég vona að þú njótir með fjölskyldu og vinum. Takk fyrir að styðja Liverpool. Þú munt aldrei ganga einn."
Í tilefni af afmælinu bauð Liverpool Bernard á leikinn gegn Crystal Palace í gær.
Stuðningsmenn höfðu áhyggjur af honum enda var leikurinn mjög fjörugur og endaði hann 4-3. Það var allt í himnalagi með Bernard sem mætti á blaðamannafund Klopp eftir leikinn. Klopp fékk mynd með Bernard sem sjá má hér að neðan.
🎂 The full story of the 104 year-old Liverpool fan, Bernard Sheridan, who was at today's game. We can tell you he survived the dramatic game!
— This Is Anfield (@thisisanfield) January 19, 2019
➡️ https://t.co/8YZ3qJ6lad pic.twitter.com/H2cXVmvGuV
Athugasemdir