Guingamp tapaði 9-0 gegn Paris Saint-Germain í frönsku úrvalsdeildinni í gær.
Það er ekki á hverjum degi þar sem svona stórar tölur sjást í einni sterkustu deild Evrópu.
Edinson Cavani og Kylian Mbappe voru báðir með þrennu, Neymar skoraði tvö og Thomas Meunier var með eitt.
Þeir sem sjá um Twitter-reikning Guingamp tóku það jákvæða út úr þessum leik.
„Það er betra að tapa einu sinni 9-0 en að tapa níu sinnum 1-0," var skrifað á Twitter-reikning Guingamp eftir leikinn. Alltaf gott að sjá það jákvæða.
Hér að neðan er tístið, en Guingamp er á botni frönsku úrvalsdeildarinnar.
#PSGEAG 90' Mieux vaut perdre une fois 9-0 que 9 fois 1-0. Bonne soirée à tous ✌
— En Avant de Guingamp (@EAGuingamp) January 19, 2019
Athugasemdir