banner
   sun 20. janúar 2019 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hasenhuttl búinn að skáka Mark Hughes
Mynd: Getty Images
Austurríkismaðurinn Ralph Hasenhuttl er að fara vel af stað með Southampton.

Southampton vann 2-1 sigur gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni í gær, en það var fjórði deildarsigur Souhampton undir stjórn Hasenhuttl.

Blaðamaðurinn Richard Jolly birti athyglisverða tölfræði í gær. Hasenhuttl hefur unnið fleiri deildarleiki með Southampton en Mark Hughes tókst að vinna á átta og hálfum mánuði. Hasenhuttl hefur stjórnað Southampton í rúmar sex vikur.

Hasenhuttl skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við Southampton þann 5. desember síðastliðinn. Hann tók við af Mark Hughes.

Hasenhuttl er Austurríkismaður sem hefur oft verið líkt við Jurgen Klopp.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner