Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 20. janúar 2019 11:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Henry við andstæðing: Amma þín er hóra
Mynd: Getty Images
Thierry Henry var mjög ósáttur á hliðarlínunni þegar Mónakó tapaði 5-1 gegn Strasbourg á heimavelli í frönsku úrvalsdeildinni í gær.

Mónakó er í miklu basli og hefur gengi liðsins ekkert batnað síðan Henry tók við. Liðið er í næst neðsta sæti frönsku úrvalsdeildarinnar þegar mótið er rúmlega hálfnað.

Henry taldi Strasbourg vera að tefja leikinn undir lok fyrri hálfleiks og lét heyra í sér á hliðarlínunni. Hann sagði einfaldlega við Kenny Lala, leikmann Strasbourg:

„Það eru bara 43 mínútur búnar, hættu þessu, þetta er nóg. Amma þín er hóra."

Henry gæti átt von á refsingu fyrir þetta en ummæli hans heyrast vel í upptöku Canal +.




Athugasemdir
banner
banner