Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 20. janúar 2019 20:05
Ívan Guðjón Baldursson
Kjarnafæðismótið: Jafnt í toppslagi B-deildar
Mynd: Dalvík/Reynir
Höttur/Huginn 2 - 2 Dalvík/Reynir
1-0 Brynjar Árnason ('13)
1-1 Jóhann Örn Sigurjónsson ('56)
2-1 Heiðar Logi Jónsson ('74)
2-2 Jón Heiðar Magnússon ('76)

Sameinað lið Hattar og Hugins gerði jafntefli við löngu sameinað lið Dalvíkur og Reynis í toppslag B-deildar Kjarnafæðismótsins í dag.

Heiðar Logi Jónsson kom Austfirðingum yfir með eina marki fyrri hálfleiksins en Jóhann Örn Sigurjónsson jafnaði fyrir Dalvíkinga í upphafi síðari hálfleiks.

Bjarki Sólon Daníelsson kom Hetti/Hugin aftur yfir á 74. mínútu en Jón Heiðar Magnússon svaraði tveimur mínútum síðar.

Lokatölur urðu 2-2 og deila liðin toppsæti B-deildar Kjarnafæðismótsins, þar sem þau eru með sjö stig eftir þrjár umferðir.
Athugasemdir
banner
banner
banner