Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 20. janúar 2019 23:15
Ívan Guðjón Baldursson
Óttast að Bellerin verði frá út tímabilið
Mynd: Getty Images
Arsenal óttast að Hector Bellerin hafi skaddað liðband á vinstra hné í 2-0 sigri gegn Chelsea á laugardaginn.

Bellerin, sem er nýkominn aftur eftir meiðsli á kálfa, þurfti að fara af velli eftir 72 mínútur í erkifjendaslagnum.

Bellerin mun gangast undir rannsóknir á næstu dögum. Ef það kemur í ljós að hann hafi skaddað liðband verður hann frá út tímabilið, í versta falli gæti hann misst af byrjun næsta tímabils.

Stephan Lichtsteiner og Ainsley Maitland-Niles munu berjast um að leysa Bellerin af hólmi.
Athugasemdir
banner
banner
banner