Fram er enn í séns á að komast áfram í Reykjavíkurmóti karla eftir að liðið lagði Þrótt R. 1-0 í Egilshöllinni á föstudagskvöld.
Fram tapaði fyrsta leik sínum í mótinu gegn KR en þar fékk liðið fjögur mörk á sig.
Það var mikil harka í leiknum á föstudagskvöld og var útlit fyrir að liðin myndu skipta stigunum bróðurlega á milli sín en undir lok leiks fékk Fram vítaspyrnu og skoraði Helgi Guðjónsson örugglega.
FramTV hefur birt markið og allt það helsta úr leiknum en það má sjá hér neðst í fréttinni.
Fram 1 - 0 Þróttur R.
1-0 Helgi Guðjónsson ('88, víti )
Athugasemdir