Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 20. janúar 2019 21:57
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Barca óstöðvandi - Þriðji sigur Diego í röð
Mynd: Getty Images
Barcelona er aftur komið með fimm stiga forystu á toppi spænsku deildarinnar eftir 3-1 sigur gegn Leganes.

Ousmane Dembele gerði eina mark fyrri hálfleiksins eftir góðan undirbúning frá Jordi Alba en Martin Braithwaite náði að jafna snemma í síðari hálfleik.

Luis Suarez kom Börsungum yfir á nýjan leik áður en Lionel Messi innsiglaði sigurinn eftir laglegt samspil við Alba.

Diego Jóhannesson Pando lék þá nánast allan leikinn á hægri kanti er Real Oviedo vann sinn þriðja leik í röð í spænsku B-deildinni.

Oviedo lagði fallbaráttulið Extremadura á útivelli og er aðeins tveimur stigum frá umspilssæti.

Barcelona 3 - 1 Leganes
1-0 Ousmane Dembele ('32)
1-1 Martin Braithwaite ('57)
2-1 Luis Suarez ('71)
3-1 Lionel Messi ('92)

Extramadura 0 - 2 Real Oviedo
0-1 Joselu ('34)
0-2 Yoel Barcenas ('53)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner