Udinese 1 - 1 Atalanta
1-0 Roberto Pereyra ('1 )
1-1 Luis Muriel ('44 )
Einn leikur fór fram í ítölsku A-deildinni í dag en um er að ræða leik úr 10. umferð sem var frestað vegna ómögulegra vallarskilyrða á sínum tíma.
1-0 Roberto Pereyra ('1 )
1-1 Luis Muriel ('44 )
Einn leikur fór fram í ítölsku A-deildinni í dag en um er að ræða leik úr 10. umferð sem var frestað vegna ómögulegra vallarskilyrða á sínum tíma.
Leikurinn byrjaði ákaflega fjörlega en Argentínumaðurinn Roberto Pereyra kom Udinese yfir eftir aðeins 23 sekúndna leik.
Kólumbíumaðurinn Luis Muriel jafnaði fyrir Atalanta seint í fyrri hálfleik.
Sterkt stig fyrir Udinese sem er í 15. sæti deildarinnar en Atalanta missti af tækifæri til að koma sér í þriðja sætið. Liðið er nú í sjötta sætinu.
Athugasemdir