„Þú gætir ekki valið verri tíma til að mæta Manchester United," segir Tim Sherwood sérfræðingur Sky Sports um leik Liverpool og Manchester United um helgina.
Liverpool heimsækir erkifjendur sína í United í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. Liverpool getur endurheimt toppsætið af Manchester City með sigri eða jafntefli í leiknum.
„Ef þú myndir spyrja leikmenn United hvenær þeir vildu spila þennan leik þá myndu þeir vilja það núna því þeir eru á flugi. Ef þeir vilja eyðileggja tímabilið fyrir einhverjum er það Liverpool."
„Þeir (United) eru sjálfir að keppa um að enda í topp fjórum og Solskjær er að gera tilkall þessa stundina (í að fá starfið). Þetta er stærsti leikur þeirra á tímabilinu."
„Þessi leikur er þýðingarmikill fyrir bæði lið og meira fyrir Liverpool en United því þeir eru nálægt titlinum."
Athugasemdir