Viðar Örn Kjartansson er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við uppeldisfélagið sitt Selfoss, sem leikur í 2. deild á komandi tímabili.
Þar verður hann liðsfélagi Jóns Daða Böðvarssonar, en þeir ólust báðir upp hjá félaginu og voru partur af íslenska landsliðinu á sínum bestu árum.
Viðar Örn er 35 ára gamall, tveimur árum eldri heldur en Jón Daði sem á tvö ár eftir af sínum samningi við Selfoss. Það verður gífurlega spennandi og áhugavert að fylgjast með þeim félögunum hrella varnarlínur 2. deildarinnar í sumar.
„Mér líður frábærlega og þetta hefur alltaf verið minn draumur að enda ferilinn hérna þar sem þessi vegferð byrjaði og ég er bara í sjöunda himni," sagði Viðar Örn við undirskrift á samningi við Selfoss, en hann kemur til félagsins eftir misheppnaða dvöl hjá KA á Akureyri.
„Þetta hefur verið möguleiki áður en núna fannst mér þetta vera rétt tímasetning. Ég var alltaf að fara að enda heima, það er alveg öruggt. Það var bara spurning um tímapunktinn.
„Það var smá bras síðasta sumar, við fórum niður um deild en ég er búinn að æfa með liðinu í tvo til þrjá mánuði og það er ótrúlegur efniviður hérna og möguleikarnir eru gríðarlega miklir. Þjálfarateymið er virkilega gott, mér lýst mjög vel á alla starfsemina hérna og ég er spenntur að reyna það sem ég get til að hjálpa við að rífa klúbbinn upp á næsta stig. Það er plan hérna fyrir næstu árin, þegar ég hef lokið mínum ferli sem leikmaður hér mun klúbburinn vera á frábærum stað."
Viðar var spurður hvort það sé nóg eftir á tankinum og telur svo vera. Dvöl hans hjá KA litaðist af sjaldgæfum meiðslum og er Viðar staðráðinn í að sanna sig á komandi sumri.
„Ég hef verið heppinn með meiðsli í gegnum ferilinn og mín týpa af leikmanni verður bara betri á mörgum sviðum fótboltans með aldrinum," bætti Viðar við, en til eru frábær dæmi um öfluga framherja í heimsfótboltanum sem hafa haldið áfram að spila á mjög háu gæðastigi þrátt fyrir hækkandi aldur.
„Mér líður eins og ég eigi nóg eftir. Stefnan er að vera frábær öll þrjú árin og þetta fer mjög mikið eftir því hvernig þú hugsar um þig, hvernig þú æfir og allt annað utan vallar sem hjálpar til í því. Ég á nóg eftir og ég hef engar áhyggjur af því að meiðast aftur."
Viðar var að lokum spurður út í góðvin sinn frá Selfossi Jón Daða, en þeir tóku sín fyrstu skref á ferlinum með Selfossi líkt og Guðmundur Þórarinsson sem er hjá ÍA í dag.
„Við höfum rætt þetta mikið í gegnum ferilinn okkar að enda saman á Selfossi og það er að verða að veruleika sem er alveg magnað. Ég og hann saman upp á topp getum skapað usla í hvaða deild sem er hérna á Íslandi og við getum kennt yngri kynslóðinni ótrúlega mikið. Við erum ótrúlega góðir vinir og þetta er frábær saga."
20.02.2026 13:38
Viðar Örn kominn heim á Selfoss (Staðfest)
Athugasemdir


