Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 20. mars 2021 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Bretar í ferðabanni - Leikir Liverpool og Man Utd í hættu?
Mynd: Getty Images
Það gilda strangar reglur í mörgum löndum er varðar komufarþega frá Bretlandi vegna útbreiðslu Covid-19 þar í landi.

Bretar mega til dæmis ekki lenda á Spáni þar til 30. mars hið minnsta en mögulegt er að þetta tímabil verði lengt.

Það gæti haft neikvæðar afleiðingar fyrir Evrópukeppnir og þá sérstaklega leiki Liverpool og Manchester United sem eiga að fara fram á Spáni í apríl.

Liverpool heimsækir Real Madrid til Spánar í byrjun mánaðar, skömmu áður en Man Utd kíkir til Granada.
Athugasemdir
banner
banner
banner