Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 20. mars 2021 14:23
Ívan Guðjón Baldursson
Enski bikarinn: Southampton örugglega í undanúrslit
Mynd: Getty Images
Bournemouth 0 - 3 Southampton
0-1 Moussa Djenepo ('37)
0-2 Nathan Redmond ('45)
0-3 Nathan Redmond ('59)

Southampton heimsótti Bournemouth í 8-liða úrslitum enska bikarsins og léku lærisveinar Ralph Hasenhüttl á alls oddi.

Cameron Carter-Vickers kom knettinum í netið á tíundu mínútu en markið ekki dæmt gilt vegna rangstöðu.

Nathan Redmond átti stórleik og lagði hann fyrsta mark leiksins upp fyrir Moussa Djenepo áður en hann tvöfaldaði forystuna með glæsilegu marki eftir gott einstaklingsframtak.

Staðan var 0-2 í leikhlé og kom Che Adams knettinum í netið í upphafi síðari hálfleiks en markið ekki dæmt gilt vegna rangstöðu.

Bournemouth fékk nokkur færi en tókst ekki að skora og gerði Redmond þriðja mark Southampton á 59. mínútu. Meira var ekki skorað og urðu lokatölur 0-3 fyrir Southampton þó þeir hafi komið knettinum fimm sinnum í netið.

Southampton er fyrsta liðið sem kemst í undanúrslitin. Everton, Man City, Chelsea, Sheffield Utd, Man Utd og Leicester eru enn í keppninni.
Athugasemdir
banner
banner