lau 20. mars 2021 15:28
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: KFS hafði betur gegn Ægi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KFS 1 - 0 Ægir
1-0 Ásgeir Elíasson ('81)

KFS og Ægir áttust við á Selfossi í B-deild Lengjubikarsins í dag og úr varð hörkuleikur.

Hvorugu liði tókst að skora þar til undir lokin þegar Ásgeir Elíasson gerði sigurmark KFS.

KFS og Ægir munu leika saman í 3. deild í sumar eftir að KFS komst upp úr 4. deildinni í fyrra.

Liðin mættust í botnslag og er Ægir án stiga eftir fjórar umferðir. KFS er með þrjú stig eftir þrjár.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner