Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 20. mars 2021 11:34
Ívan Guðjón Baldursson
Markahæsti leikmaður í sögu Leeds látinn
Mynd: Getty Images
Peter Lorimer, markahæsti leikmaður í sögu Leeds, er látinn eftir langvarandi veikindi.

Lorimer lést 74 ára gamall en hann gerði frábæra hluti á tíma sínum hjá Leeds frá 1962 til 1985, með nokkurra ára pásu inn á milli.

Lorimer var aðeins 15 ára og 289 daga gamall þegar hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir Leeds og á hann enn í dag metið fyrir að vera yngsti leikmaður til að spila keppnisleik fyrir félagið.

Lorimer var sóknartengiliður og skoraði 238 mörk í 705 leikjum með Leeds, auk þess skora 4 mörk í 21 landsleik fyrir Skotland.

Hjá Leeds vann Lorimer allt sem hann gat unnið á Englandi og er hann eflaust ein stærsta goðsögn í sögu félagsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner