Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 20. mars 2021 07:40
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: KSÍ 
Öll félög í efstu deildum komin með keppnisleyfi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: KSÍ
Síðari fundur leyfisráðs KSÍ í leyfisferlinu fyrir keppnistímabilið 2021 fór fram á miðvikudag og voru þátttökuleyfi 16 félaga samþykkt.

Þar með hafa öll 34 félögin í efstu tveimur deildum karla og efstu deild kvenna fengið útgefin þátttökuleyfi. Hér að neðan má sjá samþykktar leyfisumsóknir á fundi leyfisráðs 17. mars.

Samþykktar leyfisumsóknir í Pepsi Max deild karla:
KA

Samþykktar leyfisumsóknir í Pepsi Max deild kvenna:
ÍBV
Selfoss
Tindastóll
Þór/KA
Þróttur R.

Samþykktar leyfisumsóknir í Lengjudeild karla:
Fjölnir
Grindavík
Grótta
ÍBV
Kórdrengir
Selfoss
Vestri
Víkingur Ó.
Þór
Þróttur R.

Fyrirvari: Veiting þátttökuleyfis á þessu stigi er bráðabirgðagjörningur þar sem gögn sem á að skila 31. mars nk. hafa ekki verið lögð fram. Umsókn félaga um þátttökuleyfi 2021 er samþykkt af leyfisráði með fyrirvara um afgreiðslu stjórnar KSÍ á tillögum mannvirkjanefndar um vallarleyfi fyrir keppnistímabilið 2021.
Athugasemdir
banner
banner