Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 20. mars 2021 14:50
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu markið: Guðlaugur Victor kom Darmstadt yfir
Mynd: Getty Images
Guðlaugur Victor Pálsson, fyrirliði Darmstadt, skoraði eina mark liðsins í jafntefli gegn Braunschweig í dag.

Guðlaugur Victor er lykilmaður í liði Darmstadt sem er í neðri hluta B-deildar þýska boltans, níu stigum fyrir ofan fallsæti.

Hann kom Darmstadt yfir á þrettándu mínútu gegn Braunschweig með laglegu marki þar sem hann fékk boltann á góðum stað í teignum og skoraði með flottu skoti sem fór í slána og inn.

Guðlaugur Victor spilar á miðjunni hjá Darmstadt en hann er fjölhæfur leikmaður og getur til að mynda spilað í hægri bakverði.

Sjáðu markið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner