Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 20. mars 2021 14:17
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Guðlaugur Victor skoraði eina mark Darmstadt
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Braunschweig 1 - 1 Darmstadt
0-1 Guðlaugur Victor Pálsson ('13)
1-1 Nick Proschwitz ('17, víti)
1-1 Nick Proschwitz ('25, misnotað víti)

Guðlaugur Victor Pálsson lék lykilhlutverk í hörkuslag er Darmstadt heimsótti Braunschweig í þýsku B-deildinni í dag.

Guðlaugur Victor skoraði fyrsta mark leiksins á 13. mínútu með frábæru skoti úr góðu færi sem fór í slána og inn.

Fjórum mínútum síðar voru heimamenn í Braunschweig búnir að jafna úr vítaspyrnu og skömmu eftir það fengu þeir aðra vítaspyrnu eftir að boltinn fór í hendi Guðlaugs Victors innan vítateigs.

Markvörður Darmstadt gerði þó vel og varði vítaspyrnuna.

Leikurinn var áfram jafn og skemmtilegur en hvorugu liði tókst að skora og niðurstaðan 1-1 jafntefli.

Darmstadt siglir nokkuð lygnan sjó níu stigum frá fallsvæðinu þegar átta umferðir eru eftir.
Athugasemdir
banner
banner
banner