Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 20. apríl 2019 11:30
Ívan Guðjón Baldursson
Sex tilnefndir sem besti leikmaður tímabilsins - Enginn Salah
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildin er búin að staðfesta tilnefningar til verðlauna fyrir besta leikmann tímabilsins.

Þrír leikmenn Manchester City eru tilnefndir, tveir úr Liverpool og einn frá Chelsea.

Virgil van Dijk, varnarmaður Liverpool, og Raheem Sterling, kantmaður Man City, eru taldir líklegastir til að hreppa verðlaunin.

Sergio Agüero og Bernardo Silva eru einnig tilnefndir úr liði Englandsmeistaranna og Sadio Mane kemur einnig til greina.

Mohamed Salah, sem var bestur í fyrra, er ekki tilnefndur þrátt fyrir að vera markahæstur ásamt Agüero með 19 mörk og 7 stoðsendingar. Son Heung-min, leikmaður Tottenham, kemur heldur ekki til greina.

Eden Hazard er eini leikmaðurinn sem kemur til greina sem spilar ekki fyrir eitt af titilbaráttuliðunum.

Verðlaunin eru veitt af ensku leikmannasamtökunum og eru það leikmennirnir sjálfir sem kjósa.
Athugasemdir
banner
banner
banner