Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 20. apríl 2019 16:22
Ívan Guðjón Baldursson
Æfingaleikur: Sjáðu mörkin er ÍA sigraði Blika
Mynd: Ingunn Hallgrímsdóttir
ÍA 3 - 1 Breiðablik
1-0 Steinar Þorsteinsson
1-1 Aron Bjarnason
2-1 Tryggvi Hrafn Haraldsson
3-1 Gonzalo Zamorano

Skagamenn fengu Breiðablik í heimsókn í æfingaleik í dag og tefldu bæði lið fram sterkum byrjunarliðum.

ÍATV fylgdist með leiknum og birti myndbönd á Twitter aðgangi sínum jafnóðum og atvikin áttu sér stað.

Steinar Þorsteinsson gerði fyrsta markið í upphafi leiks en Aron Bjarnason jafnaði með glæsilegu skoti sem fór í slánna og inn. Staðan 1-1 í leikhlé.

Tryggvi Hrafn Haraldsson kom Skagamönnum yfir í síðari hálfleik áður en Gonzalo Zamorano gerði út um leikinn. Lokatölur 3-1.

















Athugasemdir
banner
banner
banner