Fulham sem er fallið úr ensku úrvalsdeildinni heimsótti Bournemouth í dag, niðurstaðan þar var 0-1 sigur Fulham sem er nú búið að vinna tvo leiki í röð.
Liðið er með 23 stig þegar 3 umferðir eru eftir. Aleksandar Mitrovic skoraði mark Fulham úr vítaspyrnu í upphafi seinni hálfleiks. Hann segir að stuðningsmenn félagsins eiga betra skilið.
„Þetta er magnað, eftir að við féllum fjölmenna stuðningsmennirnir þrátt fyrir það á völlinn. Við eigum bestu stuðningsmenn í heimi, við erum mjög þakklátir fyrir stuðninginn."
„Stuðningsmennirnir hafa verið frábærir á þessu tímabili og hafa átt betra skilið. Við munum halda áfram að berjast fyrir þá," sagði Mitrovic.
„Í dag sýndum við að við getum vel spilað í úrvalsdeildinni, auðvitað eru það mikil vonbrigði að hafa fallið niður um deild," sagði Mitrovic að lokum.
Athugasemdir