Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 20. apríl 2019 06:00
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Pepsi Max upphitun á X977 í dag - Spáin skoðuð
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson bjóða upp á veglega upphitun fyrir Pepsi Max-deildina í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag.

Spáin verður skoðuð og fjallað um öll tólf liðin í deildinni. Heyrt verður í einum af þjálfurum deildarinnar og einnig í Pétri Viðarssyni, leikmanni FH.

Það verður samt ekki bara Pepsi Max-deildin til umræðu því Birgir Theodór Ásmundsson verður á línunni. Hann er spilandi formaður hjá Úlfunum í 4. deild en liðið vann gríðarlega óvæntan 6-2 útisigur gegn Víkingi Ólafsvík í Mjólkurbikarnum í vikunni.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner
banner