Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   lau 20. apríl 2019 19:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Perez ánægður með þrennuna: Er mjög stoltur
Perez ásamt knattspyrnustjóra Newcastle, Rafa Benitez.
Perez ásamt knattspyrnustjóra Newcastle, Rafa Benitez.
Mynd: Getty Images
Ayoze Perez var í miklu stuði í dag þegar Newcastle tók á móti Southampton í ensku úrvalsdeildinni, Perez skoraði þrennu í 3-1 sigri.

„Ég er að sjálfsögðu mjög ánægður með að hafa náð að skora þrennu og að hafa hjálpað liðinu að ná í þrjú mikilvæg stig sem setja okkur í mjög góða stöðu," sagði Perez.

„Við erum í tólfta sæti núna sem er frábært. Ég verð að þakka liðsfélögum mínum fyrir leikinn í dag, við spiluðum mjög vel og ég er mjög stoltur af sjálfum mér með að hafa náð að skora þrennu."

„Við höfum verið að spila mjög vel undanfarna mánuði og náð í frábær úrslit, við erum öruggir með sæti okkar í úrvalsdeildinni og stefnum nú á að koma okkur ennþá ofar," sagði Perez að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner