Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 20. apríl 2019 16:35
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Aspas og Boufal björguðu Celta
Mynd: Getty Images
Thomas Lemar gerði sigurmark Atletico Madrid gegn Eibar í dag. Atletico spilaði hörmulega og stal sigrinum undir lokin.

Lemar kom inn af bekknum eftir skelfilegan fyrri hálfleik en sá síðari var ekki mikið skárri. Skipting Diego Simeone skilaði sér þó og er Atletico sjö stigum fyrir ofan Real Madrid og sex stigum eftir Barcelona. Bæði stórveldin eiga þó leik til góða.

Sofiane Boufal var þá hetjan er Celta Vigo sigraði Girona í fallbaráttunni. Celta var betri aðilinn allan leikinn og skoraði Iago Aspas fyrsta markið á 34. mínútu eftir glæsilegan undirbúning frá Boufal.

Portu jafnaði fyrir Girona, gegn gangi leiksins, og blésu heimamenn til sóknar enda nauðsynlegt að sigra þennan slag. Sóknarþunginn skilaði sér á 69. mínútu þegar Boufal skoraði glæsilegt sigurmark eftir sendingu frá Aspas.

Celta er þremur stigum frá fallsæti eftir sigurinn, einu stigi fyrir ofan Girona.

Eibar 0 - 1 Atletico Madrid
0-1 Thomas Lemar ('85)

Celta Vigo 2 - 1 Girona
1-0 Iago Aspas ('34)
1-1 Portu ('48)
2-1 Sofiane Boufal ('69)
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 31 24 6 1 67 20 +47 78
2 Barcelona 31 21 7 3 62 34 +28 70
3 Girona 31 20 5 6 63 39 +24 65
4 Atletico Madrid 31 19 4 8 59 36 +23 61
5 Athletic 32 16 10 6 52 30 +22 58
6 Real Sociedad 31 13 11 7 45 33 +12 50
7 Valencia 31 13 8 10 34 32 +2 47
8 Betis 31 11 12 8 38 37 +1 45
9 Getafe 31 9 12 10 37 43 -6 39
10 Villarreal 31 10 9 12 49 54 -5 39
11 Osasuna 31 11 6 14 36 44 -8 39
12 Las Palmas 31 10 7 14 29 35 -6 37
13 Sevilla 31 8 10 13 39 44 -5 34
14 Alaves 31 8 8 15 26 38 -12 32
15 Mallorca 31 6 13 12 25 36 -11 31
16 Vallecano 31 6 13 12 25 38 -13 31
17 Celta 31 6 10 15 33 46 -13 28
18 Cadiz 31 4 13 14 21 41 -20 25
19 Granada CF 32 3 9 20 33 61 -28 18
20 Almeria 31 1 11 19 30 62 -32 14
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner