Sjónvarpsstöðvarnar hafa verið duglegar við að rifja upp sígilda íþróttaviðburði síðustu vikur.
RÚV byrjar í vikunni að endursýna gamla bikarúrslitaleiki á RÚV 2 en í kvöld klukkan 20:55 verður sýndur leikur frá 1986 í heild sinni.
Um er að ræða bikarúrslitaleik Fram og ÍA á Laugardalsvelli þar sem Skagamenn fögnuðu 2-1 sigri. Pétur Ormslev kom Fram yfir en Pétur Pétursson skoraði tvívegis fyrir ÍA, sigurmarkið kom í blálokin.
Hér að neðan má sjá svipmyndir úr leiknum.
Fleiri gamlir bikarúrslitaleikir verða sýndir á næstu dögum.

Athugasemdir