Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, er ekki eirðarlaus á þessum furðulegu tímum en hann lærði að gera bindishnút á dögunum og fagnaði því ákaflega.
Klopp hefur haft nóg fyrir stafni í samkomubanninu á Bretlandseyjum en enska deildin hefur verið í fríi síðasta mánuðinn vegna kórónaveirunnar.
Hann setti sér markmið í þessari viku og það var að gera bindishnút en afraksturinn var birtur á Twitter-síðu Liverpool.
Hægt er að sjá niðurstöðuna hér fyrir neðan.
👔 Jürgen's goal for the week: Done ✅ pic.twitter.com/oGGyZeTJjb
— Liverpool FC (at 🏠) (@LFC) April 20, 2020
Athugasemdir