Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mán 20. apríl 2020 21:04
Brynjar Ingi Erluson
Leikmaður Lokomotiv Moskvu fékk hjartaáfall og lést
Mynd: Getty Images
Innokenty Samokhalov, leikmaður Lokomotiv Moskvu í Rússlandi, er látinn en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Innokenty, sem var 22 ára gamall, gekk til liðs við Lokomotiv árið 2015 en hann spilaði með unglinga- og varaliði félagisns. Hann náði aldrei að spila leik fyrir aðallið félagisns.

Hann æfði einn á meðan leikmenn einangra sig vegna kórónaveirunnar. Hann fékk hjartaáfall á miðri æfingu og lést svo skömmu síðar.

„FC Lokomotiv er í sjokki yfir því sem gerðist. Þetta er mikil sorg fyrir félagið og við vottum fjölskyldu hans og vinum samúð," var skrifað á heimasíðu Lokomotiv.


Athugasemdir
banner
banner