Fréttamannafundur íslenska landsliðsins sem fram fór í bækistöðvunum við Svartahaf í morgun gekk að mestu mjög vel. Þó voru örlitlir tæknilegir örðugleikar.
Míkrafónninn hjá Hannesi markverði bauð upp á ærandi ískur eins og sjá má á myndskeiðinu hér fyrir neðan.
Alfreð Finnbogason fann þó lausnina og með smá færslum á hljóðnemum komst allt í lag.
Míkrafónninn hjá Hannesi markverði bauð upp á ærandi ískur eins og sjá má á myndskeiðinu hér fyrir neðan.
Alfreð Finnbogason fann þó lausnina og með smá færslum á hljóðnemum komst allt í lag.
Eftir að fréttamannafundinum lauk var strax farið í að gera prófanir á hljóðkerfinu svo þetta endurtaki sig ekki á næsta fundi sem haldinn verður í tjaldinu.
Íslenska liðið flýgur seinni partinn í dag yfir til Volgograd, þar sem leikið verður gegn Nígeríu á föstudag.
Hljóðkerfið lék @hanneshalldors grátt á fréttamannafundinum í dag en @A_Finnbogason fann lausn á vandanum! #fotboltinet 🔊👂 pic.twitter.com/Cx4P6xZy4H
— Fotbolti.net (@Fotboltinet) June 20, 2018
Athugasemdir