Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   fim 20. júní 2019 22:15
Arnór Heiðar Benónýsson
Búi: Framhaldið kemur bara í ljós
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haukar þurftu að sætta sig við tap á heimavelli í hörkuleik á móti Leikni R. í kvöld. Haukar sitja því í fallsæti með einungis 6 stig eftir 8 umferðir.

Lestu um leikinn: Haukar 1 -  2 Leiknir R.

Búi Vilhjálmur Guðmundsson bráðabirgðastjóri Hauka hafði ekki mikið að segja um frammistöðu sinna manna í kvöld.

„Við komum vanstilltir inn í þennan leik, við byrjuðum vel en náðum ekki að gíra okkur upp til að fylgja eftir góðum sigri seinast.“

Búi tók við liðinu núna eftir Kristján Ómar Björnsson sagði upp störfum í lok Maí. Búi gat lítið sagt um framtíð sína annað en að það kæmi í ljós hvort hann muni stýra liðinu út tímabilið.

Frammistaða dómara leiksins var svolítið á milli tannanna á mönnum eftir leik en Sean De Silva fékk meðal annars að líta rautt spjald undir lok leiks.

„Ég sá klárlega brot í báðum spjöldunum en mjög soft í bæði skiptin, það er spurning hvar dómarar eiga að draga mörkin. Við þjálfarar og leikmenn gagnrýnum okkur eftir leiki og ég vona að dómarinn fari líka í einhverja sjálfskoðun eftir þenann leik því ef þetta á að vera í boði í sumar þá veit ég ekki hvernig þetta endar.“
Athugasemdir
banner
banner
banner