Það er aðeins einn leikur á dagskrá í Suður-Ameríku bikarnum, Copa America, í kvöld.
Vel mannað lið Úrúgvæ mætir Japan, sem er gestalið á mótinu.
Leikurinn hefst klukkan 23:00 og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Liðin eru í C-riðli. Fyrir leikinn er Úrúgvæ með þrjú stig eftir 4-0 sigur á Ekvador á meðan Japan er án stiga eftir 4-0 tap í fyrsta leik gegn ríkjandi meisturum Síle.
Leikur dagsins:
23:00 Úrúgvæ - Japan (Stöð 2 Sport)
Athugasemdir