Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 20. júní 2019 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Er Jenkinson loksins á förum frá Arsenal?
Mynd: Getty Images
West Brom er í viðræðum við Arsenal um kaup á varnarmanninum Carl Jenkinson. Sky Sports segir frá.

Það er í raun magnað að Jenkinson sé enn hjá Arsenal. Hann hefur verið hjá félaginu síðastliðin átta ár og aðeins spilað 40 úrvalsdeildarleiki fyrir félagið. Hann kom aðeins við sögu í átta leikjum fyrir Arsenal á síðasta tímabili.

Hinn 27 ára gamli Jenkinson vill fara frá Arsenal í von um að fá meiri spiltíma.

Auk West Brom þá hafa skosku meistararnir í Celtic einnig áhuga á honum.

West Brom hafnaði í fjórða sæti Championship-deildarinnar á síðasta tímabili. Liðið féll úr leik í undanúrslitum umspilsins í Championship gegn nágrönnum sínum í Aston Villa.
Athugasemdir
banner
banner
banner