Sean De Silva skoraði og fékk rautt
Tveir leikir fóru fram í Inkasso deild karla í kvöld. Leiknir heimsótti Hauka á Ásvelli og Í Njarðvík kom Afturelding í heimsókn.
Sean De Silva kom Haukum yfir með skoti af stuttu færi eftir hamagang í teig Leiknismanna. Leiknir jafnaði leikinn með marki frá Sævari Atla Magnússon eftir slæm mistök hjá varnarmanni Hauka.
Staðan var 1-1 í hálfleik. Á 78. mínútu kom sigurmarkið. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson gerði það fyrir gestina.
Sean De Silva kom Haukum yfir með skoti af stuttu færi eftir hamagang í teig Leiknismanna. Leiknir jafnaði leikinn með marki frá Sævari Atla Magnússon eftir slæm mistök hjá varnarmanni Hauka.
Staðan var 1-1 í hálfleik. Á 78. mínútu kom sigurmarkið. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson gerði það fyrir gestina.
Skömmu eftir markið fékk Sean De Silva að líta sitt annað gula spjald á skömmum tíma. „Sean fær hérna seinna gula spjaldið sitt á stuttum tíma, dómarinn heldur því fram að Sean hafi slegið Gyrði í andlitið á leið framhjá honum.
Þetta var aldrei viljaverk og mjög hart seinan gula.
Haukar manni færri seinustu 10." skrifaði Arnór Heiðar Benónýsson í beinni textalýsingu frá leiknum.
Í Njarðvík var staðan markalaus allt þar til á 79. mínútu. Þá komust gestirnir úr Mosfellsbænum yfir. Ásgeir Örn Arnþórsson var þar á ferðinni eftir atgang í teig Njarðvíkur.
„Afturelding kemst yfir! Afturelding fær hornspyrnu sem Njarðvíkingar skalla frá en mér sýndist Andri Már eiga svo skot sem Brynjar Atli slær upp í loft og út í teig, einhver atgangur er síðan þar sem Brynjar Atli liggur eftir en það er svo Ásgeir Örn sem spyrnir boltanum inn að lokum." skrifaði Stefán Marteinn Ólafsson í beinni textalýsingu frá leiknum.
Afturelding tryggði svo sigurinn með marki frá Alexander Aron Davorssyni í uppbótartíma.
Leiknir er með sigrinum komið með tólf stig, Afturelding hefur níu, Njarðvík sjö og Haukar hafa sex stig. Umferðin í Inkasso deildinni lýkur á laugardag.Stöðuna í deildinni má sjá neðst í fréttinni. Þegar fréttin er skrifuð hefur taflan ekki verið uppfærð en mun uppfærast innan tíðar."
Haukar 1 - 2 Leiknir R.
1-0 Sean De Silva ('7 )
1-1 Sævar Atli Magnússon ('34 )
1-2 Gyrðir Hrafn Guðbrandsson ('78 )
Rautt spjald:Sean De Silva, Haukar ('81)
Lestu nánar um leikinn hér.
Njarðvík 0 - 2 Afturelding
0-1 Ásgeir Örn Arnþórsson ('79)
0-2 Alexander Aron Davorsson ('93)
Lestu nánar um leikinn hér.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir