Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 20. júní 2020 18:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
4. deild: Tvö mörk og tvö rauð spjöld í jafnteflisleik
Björninn jafnaði strax.
Björninn jafnaði strax.
Mynd: Aðsend
Björninn 1 - 1 Snæfell
0-1 Mateusz Roman Kubas ('83)
1-1 Guðbjörn Alexander Sæmundsson ('84)
Rautt spjald: Julio C. Fernandez De La Rosa, Snæfell ('39), Geraldo Pali, Björninn ('75)

Það fór einn leikur fram í 4. deild karla í dag og var hann í B-riðlinum. Björninn tók á móti Snæfelli á Fjölnisvelli.

Birninum er spáð efsta sæti riðilsins og Snæfelli spáð fimmta sæti. Snæfell missti mann af velli með rautt spjald í fyrri háflleik, en náðu að halda leiknum í 0-0 þrátt fyrir það.

Þegar stundarfjórðungur var eftir missti Björninn mann af velli með rautt spjald og jafnt í liðum. Þá komu mörkin. Snæfell komst yfir á 83. mínútu, en Björninn svaraði strax og jafnaði í 1-1.

Það reyndust lokatölur og byrja bæði lið því Íslandsmótið á einu stigi í kladdann.
Athugasemdir
banner