Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   lau 20. júní 2020 18:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Andri Ólafs: Ekkert töff við það að þora að spila fótbolta í 4-0
Andri Ólafsson.
Andri Ólafsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var lélegur leikur. Vitlaust uppsettur hjá mér og Birki, hefðum átt að koma ofar á þær strax. Þær unnu okkur sanngjarnt," sagði Andri Ólafsson, þjálfari ÍBV, eftir tap gegn Þór/KA í 2. umferð Pepsi Max-deildarinnar í dag.

Lestu um leikinn: Þór/KA 4 -  0 ÍBV

Leikurinn var ansi rólegur fram að fyrsta marki Þór/KA en eftir það var engin spurning hvort liðið færi með sigur af hólmi í leiknum.

„Það sprakk allt hjá okkur og þær voru miklu ákveðnari, vildu þetta meira."

„Munurinn á þessum leik og síðasta að þá vorum við sprungnar eftir klukkutíma en gátum hlaupið núna í restina. Seinni hálfleikurinn okkar sleppur alveg en það er ekkert töff við það að þora að spila fótbolta í 4-0."


Andri skipti þrisvar sinnum einum leikmanni inn á í leiknum. Kom ekki til greina að setja fleiri varamenn inn á í þeim gluggum sem í boði eru?

„Við vorum ekki með fleiri útispilara í boði. Við ætluðum okkur að skipta í fyrri hálfleik af því þetta var bara jask."

Að lokum: Verða fleiri útispilarar á bekknum í næsta leik?

„Í Vestmannaeyjum? Já þetta tekur í budduna að fljúga til Akureyrar og við erum bara fair með það. Það var ekki laust í vélinni," sagði Andri.

Allt viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner