„Mér fannst þetta þokkalegasti leikur. Leikurinn var kaflaskiptur og bæði lið vildu vinna hann. Þeir skoruðu úr sínum færum og við ekki," sagði Bjarni Jóhannsson, þjálfari Vestra, eftir 2-0 tap gegn Ólafsvíkingi í dag.
Lestu um leikinn: Víkingur Ó. 2 - 0 Vestri
Bjarni var spurður hvort hann hefði viljað sjá dæmt víti þegar virtist brotið á Rafael.
„Mér fannst þetta vera snerting en ég veit ekki hversu alvarleg hún var. Frá okkur séð leit þetta þannig út [eins og það ætti að dæma víti], er maður nokkuð að segja núna?"
Var Bjarni sáttur með sína menn?
„Ég var ekki ánægður með fyrri hálfleikinn. Mér fannst við eyða of miklu púðri í óþarfa hlaup. Síðustu mínúturnar voru þess vegna mjög erfiðar. Senni hálfleikurinn var klárlega miklu betri en fyrri hjá okkur."
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir