Varnarmennirnir Craig Dawson og Ben Chilwell skoruðu glæsileg mörk þegar Watford og Leicester skildu jöfn í hádegisleiknum.
Mark Chilwell má sjá hérna og mark Dawson má sjá hérna. Tvö frábær mörk.
„Þetta er eitthvað sem þú reynir á æfingum án þess þó að boltinn fari oft inn. Ég er mjög ánægður með þetta mark og það var gott að ná í stig á endanum. Það var frábær karakter hjá strákunum að jafna leikinn," sagði Dawson.
Chilwell fór einnig í viðtal eftir leik og sagði hann: „Stjórinn og leikmennirnir eru alltaf að benda mér á að skjóta í þessum stöðum. Ég einbeitti mér bara að því að hitta boltann vel og að setja hann á markið. Við erum að reyna að ná Meistaradeildarsæti. Watford spilaði eftir sínum styrkleikum, en við vorum betra liðið."
Litlu mörkin hjá varnarmönnunum. Skeytaklína hjá Chillwell og Dawson með klippu.
— Tómas Þór Þórðarson (@tomthordarson) June 20, 2020
Athugasemdir