Guðjón Ernir Hrafnkelsson skoraði í sínum fyrsta deildarleik með ÍBV þegar liðið vann 2-0 sigur á Magna í Lengjudeildinni.
Guðjón Ernir er 19 ára gamall og kom hann til ÍBV í vetur frá Hetti.
Guðjón Ernir er 19 ára gamall og kom hann til ÍBV í vetur frá Hetti.
Lestu um leikinn: ÍBV 2 - 0 Magni
„Mér fannst frammistaðan flott hjá mér, það er alltaf eitthvað hægt að bæta en aðstæður voru erfiðar í dag. Þetta var skemmtilegt mark, vindurinn hjálpaði kannski en samt sem áður var þetta frábært mark," sagði Guðjón Ernir í viðtali eftir leik.
„Ég er búinn að djóka með strákunum að maður sé með fimm stjörnu 'weak foot'. Ég sannaði það í dag að ég er með vinstri fót."
„Við ætlum að halda áfram að vinna, við stefnum hátt - það er bara þannig."
Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir