Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 20. júní 2020 21:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ítalía: Borini sá beint rautt í sigri
Samuel Di Carmine heitur í dag.
Samuel Di Carmine heitur í dag.
Mynd: Getty Images
Tveir leikir fóru í dag fram í ítölsku Serie A. Fyrri leiknum lauk með 1-1 jafntefli þegar Parma heimsótti Torino. Andrea Belotti brást bogalistin á vítapunktinum fyrir Torino í upphafi seinni hálfleiks, svekkjandi fyrir heimamenn.

Nicolas N'Koulou skoraði mark heimamanna eftir undirbúning Alejandro Berenguer. Gervinho lagði svo upp jöfnunarmarkið fyrir Juraj Kucka eftir ríflega hálftíma. Parma er þremur stigum frá Evrópudeildarsæti og Torino er þremur stigum fyrir ofan fallsæti.

Það var svo fjör þegar Cagliari sótti Verona heim í seinni leik dagsins. Heimamenn komust í 2-0 á 26. mínútu. Samuel Di Carmine skoraði bæði mörk þeirra. Á 35. mínútu fékk Fabio Borini, fyrrum leikmaður Liverpool, rauða spjaldið fyrir að lenda með takkana í leikmanni Cagliari þegar hann var að hreinsa boltanum fram völlinn. Gio Simeone minnkaði muninn fyrir hlé en nær komust gestirnir ekki.

Luca Cigarini fékk að líta sitt annað gula spjald hjá gestunum á 70. mínútu og því enduðu bæði lið með tíu leikmenn inná. Cagliari er í 12. sæti og Verona er í 7. sæti, stigi á eftir Napoli.

Verona 2 - 1 Cagliari
1-0 Samuel Di Carmine ('14 )
2-0 Samuel Di Carmine ('26 )
2-1 Giovanni Simeone ('43 )
Rautt spjald: Fabio Borini, Verona ('35), Luca Cigarini, Cagliari ('70)

Torino 1 - 1 Parma
1-0 Nicolas N'Koulou ('15 )
1-1 Juraj Kucka ('31 )
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 27 5 1 79 18 +61 86
2 Milan 33 21 6 6 64 39 +25 69
3 Juventus 33 18 10 5 47 26 +21 64
4 Bologna 33 17 11 5 48 26 +22 62
5 Roma 32 16 7 9 57 38 +19 55
6 Atalanta 32 16 6 10 59 37 +22 54
7 Lazio 33 16 4 13 42 35 +7 52
8 Napoli 33 13 10 10 50 41 +9 49
9 Fiorentina 32 13 8 11 45 36 +9 47
10 Torino 33 11 13 9 31 29 +2 46
11 Monza 33 11 10 12 35 43 -8 43
12 Genoa 33 9 12 12 35 40 -5 39
13 Lecce 33 8 11 14 30 48 -18 35
14 Cagliari 33 7 11 15 36 56 -20 32
15 Verona 33 7 10 16 31 44 -13 31
16 Empoli 33 8 7 18 26 48 -22 31
17 Udinese 32 4 16 12 30 48 -18 28
18 Frosinone 33 6 10 17 40 63 -23 28
19 Sassuolo 33 6 8 19 39 65 -26 26
20 Salernitana 33 2 9 22 26 70 -44 15
Athugasemdir
banner
banner
banner