Kayla, lukkuörn enska úrvalsdeildarfélagsins Crystal Palace, er látin 28 ára gömul. Kayla lést af sökum hjartaáfalls.
Kayla var gerð að lukkudýri Crystal Palace árið 2015 og hefur hún síðan þá flogið um Selhurst Park fyrir hvern einasta heimaleik. Hún var mjög vinsæl hjá stuðningsmönnum og starfsfólki félagsins.
„Hún gerði leikupplifunina mjög sérstaka og hennar verður sárt saknað," segir Amie Latter, sem var klappstýra hjá Crystal Palace um þriggja ára skeið.
Kayla var með þvagsýrugigt í mörg ár og hjálupuðu stuðningsmenn Crystal Palace við að borga dýralækningareikninga hennar.
Þetta eru afar sorglegar fréttir en Crystal Palace spilar í kvöld á útivelli gegn Bournemouth.
❤️💙 Fly high, Kayla.#CPFC pic.twitter.com/nP6aNEDubP
— Crystal Palace F.C. (H) (@CPFC) June 19, 2020
Athugasemdir